Hei gæs.
(Ekki lesa neitt joð-hljóð úr þessu æ-i hér fyrir ofan, ímyndið ykkur að ég sé að tala við ykkur á ensku.)
Ég var að senda gaurunum sem eru á landinu og það allt einn póst á feisbúkk, hann hljóðar einhvernveginn svona:
Það sagði mér lítill fugl að hann ætti að hvísla því að mér, það væru skilaboð að handan, þar sem dána fólkið lifir, að menn ætluðu í sumarbústað um hávetur þarnæstu helgi. Ég held það sé rétt?
Það var verið að tala um helgina 12., 13. og 14. febrúar. Bjór og grill og svona, fjör einsog forfeður okkar skildu hugtakið.
Nú kemur reyndar í ljós að ég kemst sjálfur ekki fyrren laugardaginn 13., þarsem það er safnanótt í Reykjavík á föstudaginn og ég var víst lifandislöngusíðan búinn að melda mig í vinnu, en það er minn aulaskapur. Þið björtu, ungu sveinar hysjið ykkur af stað eftir vinnu á föstudegi og hringið svo í mig daginn eftir til að senda mig í Hyrnuna eftir blandi.
(Ég sé þetta fyrir mér, ég er Jón "Kaldi" Kalman.)
Hvernig líst ykkur á þetta?
...
Svo sagði litli fuglinn mér að setja inn einsog eina færslu á Vitleysinga um þetta og ég hugsaði með mér ,,hví ekki?" Ég meina, hér er þessi fína síða, þarsem maður fær daglega ný skilaboð um allskonar fín lyf og þjónustu, og svo er þetta ekkert notað.
Best ég láti fylgja með, ef þið fenguð ekki fréttirnar einhverstaðar annarstaðar frá, að Helgi og kona hans eiga von á barni og Hafsteinn og kona hans eiga von á ÖÐRU barni. Ég segi ykkur ekki hvað konurnar þeirra heita, það er leyndó.
Og bara, bless í bili.
-b.